13.10.2005
Ráin í kvöld og svo bú!!
jæja þá, ég tek síðustu one man band tónleikana mína hér heima í kvöld
á Ránni í Keflavík. Ég hef verið að rúnta slatta um Evrópu og á núna
eftir 20 tónleika um Evrópu og Bandaríkin fram að byrjun Desember.
Eftir það parkera ég ferðatöskunni þangað til að ég er kominn með nýtt
stuff, nýja alvöru plötu.
Langaði að taka þessa síðustu tónleika í Keflavík þar sem þeir voru svo
ljúfir að bjóða mér að koma og spila. Hlakka mikið til. það er 500 kall
inn og ég byrja uppúr 10 í kvöld. Endilega skella sér á Ránna í
kvöld.
mugimugi