• tónlist
  • Síðan Mín
    • afgreiðsluborð
    • keyptar vörur
    • Breyta Lykilorði
  • ljósmyndir
  • fréttir
    • myspace
    • Facebook
    • upplýsingar
    • Twitter
    • gamlar fréttir
    • linkar
  • Tónleikar
    • búið og gert
30.9.2005

sælt veri fólkið

Búinn með 2 tónleika, einn í Rotterdam og annan I Amsterdam í gærkvöldi. Tónleikarnir í Rotterdam voru skemmtilegir, ég og Kira Kira í góðum fíling fyrir fullu húsi, mjög gaman. Tónleikarnir í gær klúðruðust samt alveg, D-Strengurinn slitnaði í fyrsta lagi, og ég nátturulega ekki með aukastreng á mér.

.......spilaði samt í rúmar 40 mínútur.. reyndi að láta þetta virka en gekk frekar brösulega, var samt eiginlega ekkert svekktur eftir giggið, fannst bara gott að ég náði að komast í gegnum heilt prógram án hans.... En óvíst hvort staðarhaldari vilji fá mig aftur, skiljanlega.

Við Biggi eigum frí í dag, vorum að pæla að fara aftur til Rotterdam þar sem Pétur var að spila í gær og sjá the Fall og Tunng spila í kvöld. Hef nú aldrei fílað the Fall en langar að sjá gaurinn, fríksjóið,  mér skilst að þessi gaur baði sig í ólifnaði og að það sé svona hans aðal, sérstakt. Fíla ekki svoleiðis.

las á moggavefnum í gær grein um Björk þar sem hún var að gefa nokkur húsráð um hótelveru. Mér fannst þetta mjög sniðugt, sérstaklega þar sem hún benti á að maður ætti að þvo af sér á kvöldin, þá ætti maður allt hreint daginn eftir, mér fannst þetta sniðugt og fór eftir þessu í gærkveldi.. svo þarf ég að tékka mig út klukkan 11 í dag af þessu hóteli.. nema hvað allt draslið er ennþá blautt, hvað gerir maður þá Björk, ég er ekki með neitt til skiptana!... verð bara hlandblautur í dag....

annars erum við Biggi í rosafíling, eigum 5 gigg eftir á þessum litla túr.

mugimug

<<Til baka