• tónlist
  • Síðan Mín
    • afgreiðsluborð
    • keyptar vörur
    • Breyta Lykilorði
  • ljósmyndir
  • fréttir
    • myspace
    • Facebook
    • upplýsingar
    • Twitter
    • gamlar fréttir
    • linkar
  • Tónleikar
    • búið og gert
24.1.2008

Fjöldapóstur 23 Janúar

kæru vinir

Mugiboogie kom út seint í október hér heima og við Múkkarnir spiluðum víðsvegar um landið í kjölfarið. Platan fékk almennt mjög fína dóma og var valin plata ársins hjá Fréttablaðinu. Fjölskylda og vinir hjálpuðu okkur að föndra gripinn og nú er hún kominn í Platínu... eða búin að seljast í yfir 10.000 eintökum. Ég vil þakka öllum sem keyptu og hlustuðu kærlega fyrir mig.

Nú er ég að vinna að því að koma disknum út í útlandinu. Við feðgar erum að fara á tónlistar-ráðstefnu sem heitir Midem næstu helgi þar sem við ætlum að hitta nokkra dreifingaraðila og reyna að höstla góða díla.

2 febrúar erum við Múkkarnir með tónleika í Vega Kaupmannahöfn, ef þið búið þar eða þekkið einhvern sem býr þar þá endilega látið alla vita að við séum að koma. Það verður geðveikt stuð, lofa því.

Svo kem ég heim og fer að föndra út mánuðinn fyrir útlönd, þarf að föndra eitthvað yfir 10-20 þúsund stykki, vonandi næ ég um 500 stykkjum á dag ef ég er heppinn. Öll hjálp vel þegin.

Þeir Gísli Darri myndlistarmaður og Bjarki Rafn ofurforritari og tónlistarmaður gerðu fyrir mig myndband við lagið The Great Unrest. Þetta er flottasta Animation myndband sem ég hef séð, engin endurtekning og viðbjóðslega vel teiknað. Þeir eiga skilið öll verðlaun í heiminum. Takk fyrir mig, stákar.  Sjáið hér.
Ég ætla að koma plötunni út í byrjun maí erlendis og fylgja henni eftir með tónleikaferð út um allar trissur. Bandi kemur með og Biggi hjóðmaður. Ef þið vitið um einhverja styrki sem væri sniðugt að sækja um endilega látið mig vita, hendið á mig línu á mugison@gmail.com
Jæja best að fara að gera eitthvað..

kveðja

Mugison

<<Til baka