• tónlist
  • Síðan Mín
    • afgreiðsluborð
    • keyptar vörur
    • Breyta Lykilorði
  • ljósmyndir
  • fréttir
    • myspace
    • Facebook
    • upplýsingar
    • Twitter
    • gamlar fréttir
    • linkar
  • Tónleikar
    • búið og gert
Fréttir » Skoða allar
Stuðmælingar íbúa í Edinborgarhúsinu - Fréttatilkynning

stuðmæling- Opinn borgarafundur vegna Aldrei fór ég suður!

Fimmtudaginn 10. febrúar kl. 20.00 munu aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar og velunnarar hátíðarinnar blása til opins borgarafundar í sal Edinborgarhússins á Ísafirði. Aðal umræðuefni fundarins verður Rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, framtíð hennar og framþróun. Farið verður yfir síðustu hátíðir,

meira
hér er viðtal sem Valþór Ásgrímsson tók við mig fyrir Rjominn.is

Viðtal við Mugison: Með tvær plötur í vinnslu

Það hafði frést að Mugison stefndi á útgáfu með hækkandi sól og reyndar kom í ljós að plöturnar eru tvær sem hann vinnur að. Rjóminn hafði samband og átti gott spjall við kappann með hjálp alnetsins þar sem hann sagði okkur m.a. frá plötunum, hinu heimasmíðaða mirstument og tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. Hvernig gengur vinna við nýja plötu? Eru lagasmíðar langt komnar?
Já, nokkuð langt komnar. Ég myndi segja að það væri ekki langt í land, þetta er bara spurning

meira
Leggur stuðsamning fyrir bæjarstjórn (fréttablaðið 25 Jan 2011)

Hugmyndin er að ef við náum ekki að redda nógu mörgum styrkjum sé bærinn tilbúinn til að hlaupa undir bagga með eitthvað," segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, oftast ka

"Hugmyndin er að ef við náum ekki að redda nógu mörgum styrkjum sé bærinn tilbúinn til að hlaupa undir bagga með eitthvað," segir tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, oftast kallaður Mugison.

Óvissa hefur ríkt um framtíð tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, sem hefur verið haldin á Ísafirði um páskana síðustu ár. Mugison og félagar lögðu sérstakan stuðsamning fyrir bæjarstjórn á föstudag, en í honum felst meðal annars að Ísafjarðarbær styrki

meira
Djamm í Seattle
Ég, Pétur Ben, Lay Low og Sindri Seabear erum að fara djamma 5 Nov í Seattle með lókal stuðbolltum. Seattle og Reykjavík eru í Systrar-borgar-bandalagi og við send þangað að hitta þarlenda tónlistarmenn og bralla eitthvað skemmtilegt með þeim.  Við erum pöruð saman með...
meira
Daði Ingólfsson - bloggari
Datt í hug að sum ykkar hefðu gaman af Blogginu hans Daða, setur hlutina í skemmtilegt samhengi

tékkið á honum hér


en fyrir þá sem nenna ekki að klikka.. þá er hér einn pistill frá honum.. mæli með að menn nái sér í kaffi, kannski hella smá útí og sökkvi sér svo í efnið..

Ég get þetta ekki lengur...

Siðlaust fólk stjórnar þessu landi. Siðlaust fólk sem uppalið er í ungliðahreyfingum sérhagsmunaflokka - þjálfað í stjórn vs. stjórnarandstaða skrípaleiknum í Háskóla Íslands, komið til metorða innan flokksins með þátttöku í nefndum, hefur sagt já við fólkið sem er hærra uppi í metorðastiga flokkakerfisins nógu oft.


meira
Tónleikar
Sæll.
Gaman væri að fá að heyra í ykkur félögum. Reyndi í gær í Landnámssetrinu. Bý á Akranesi og hér hefur verið opnaður bráðskemmtilegur staður í gamla kaupfélaginu sem heitir reyndar Gamla Kaupfélagið. Það er búið að vera mikið af lifandi tónlist þar. Ef framhald verður tónleikahaldi hjá ykkur væri þetta kostur. Var að hala niður Ítrekun líst frábærlega á.

kv. Guðni 
meira
mugison og Björgvin Gíslason
http://www.youtube.com/watch?v=vrubCEFc2G8
meira
Mugison og Björgvin Gíslason
<object width="560" height="340"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/vrubCEFc2G8&hl=en_US&fs=1&"></param><param name="allowFullScreen" value="true"></param><param name="allowscriptaccess" value="always"></param><embed src="http://www.youtube.com/v/vrubCEFc2G8&hl=en_US&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="560" height="340"></embed></object>
meira
Möguleiki á tónleikum???
Sæll. Var að spá í hvort það væri möguleiki að þú myndir spila tónleika í Grindavík. Það er lítill pöbb sem heitir Lukku Láki hérna og ég veit að það eru mjög margir aðdáendur þínir hérna í Grindavík.  Þú getur fundið Lukku Láka á facebook undir Lukku Láku pub. Staðurinn er með leyfi fyrir 150 manns, frekar lítill en mjög kósý. Vonandi fáum við að njóta tónlistar þinnar hérna sem er alger snilld :)
P.s. Það búa mjög margir Vestfirðingar hérna :)
Kveðja Lukku Láki
meira
Elsku Ödddddiii...til hamingju með síðuna, tónleikana hér fyrir vestan og ekki síst nýjan frábæran disk...gangi ykkur vel fyrir norðan.kiss koss ammalilja
meira
ítrekun föndruð - tónleikaferð með Bjögga Gísla
Hvenær?
Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl?Hvenar verða stórir flottir mugie tónleiokar á ísl? NÆST?
meira
Skelda
Sá þig á Hróarskeldu fyrir nokkrum árum










sennilega með betri tónleikum sem ég hef séð










Rock on!
meira
Litla Hraun
Heill og sæll


Ég heiti Árni og er formaður Afstöðu félagsfanga á litla hrauni. Mér datt í hug að spyrja þig hvort þú hefðir e-n áhuga og eða tíma fyrir stutta tónleika fyrir okkur hérn. Eins og þú kannski skilur er nú lítið sem við getum boðið í staðinn nema góða mætingu og hörkustemmingu. Ef svo væri gætiru mailað á mig arniyeah@hotmail.com og við myndum finna e-a dagsettningu. Ef ekki þá veistu samt allavega þú ert alltaf velkominn.



Kveðja Árni
meira
Skráning í heimahúsatónleikana
Góða kvöldið,

Ég var að lesa um tónleikana sem þú ætlar að halda í heimahúsum á næsta ári og langaði til að skrá mig.

Ég hef sem sagt aðgang að pínulitlum sumarbústað í Þorskafirðinum fyrir Vestan (nánar tiltekið í Teigskógum) og ég held að það yrði mjög gaman og flott að hafa tónleika þar. Það er ekkert þarna í kring nema skógurinn og sjórinn....

Sendi þér mynd af staðnum.

Kv. Hulda
meira
Det Nye Talkshow 23 Oktober



























go here for more on this great show
meira
DDR á föstudag..



DDR á föstudag..

Góðan dag, heyrðu... þið sem eruð með dönsku sjónvarpstöðina DDR heima, getið horft á mig í þættinum hans Anderz - ég man ekkert hvað hann heitir, en held að hann fari í loftið uppúr sjö.. Held að þátturuinn sé um hálftíma..

Ég spila með hljómsveit þáttarins, verður gaman að sjá hvernig þetta fer, ég ætla að kenna þeim Sweetest Melody.

Er í Danmörk í geggjuðum fíling í::::::))) smurbrauð og bjór, er á hjóli í þessum galla.. held að það sé lag að fæðast
meira
Video
Lýst vel á nýju diskinn hjá þér finst þú bestur live. Koma video frá þeim disk? Væri meira en lítið til að gera eitt video með þér.

  Kv.FM
meira
blessað sé fólkið og velkominn á mugison.is
Var að opna þetta punktur isss piss og mugison dæmi, þá þarf maður ekki að vera flækjast með bæði tungumálin á sama stað.

Er í Súðavíkinni, snjór á grasi
meira
Tónleikar?
Sæll
Var að spá í hvort þú værir eitthvað að halda tónleika um landið? Málið er að ég er að vinna á bar á Suðurnesjunum (rek hann að hluta til) og var að velta því fyrir mér hvort þú værir eitthvað að stunda það að spila á tónleikum á pöbbum?? Ef svo er ertu þá einn á ferð eða með hljómsveit? Er reyndar ekki búin að ræða það neitt við eigandann en veit að hann væri meira en til í að fá þig til að spila á staðnum. Þetta er svona semi stór staður með leyfi fyrir 150 manns, smá svona dimmur en mjög svo kósý staður :) Það hafa margir spilað hérna, bæði á böllum og svo tónleikar. T.d. var seinasta vetur Guns n' roses tribute bandið að spila, Siggi Björns, Honeyboy og fleiri og fleiri
Með von um svar sem fyrst
meira
rettir.is Festival in Reykjavík next weekend - Réttir í Reykjavík næstu helgi
if your in Reykjavík, check it out.. its a great festival / sértu í bænum verðuru að koma.. þetta er geggað festiva

click here on the photo..
Túr um landið ?
Sælir, er eitthvað til í því að þú stefnir á túr um landið þar sem þú spilar í heimahúsum / eða einhverju svipuðu ??? Hef þetta líka fína hús handa þér, reyndar ekki heimili - frekar svona kofi en agalega huggulegur þó ! Endilega sendu mér línu ef það er eitthvað til í þessu.
meira
Nýr Vefur..
Hæ, þá er vefurinn loksins kominn í loftið. Endilega tékkið á tónlistinni.. nú er hægt að hala öllu dótinu niður ókeypis í sæmilegum gæðum.. og svo er hægt að kaupa diska.. og allt.. blogga og deila og senda.. ég veit ekki hvað.. endilega prófið. .. og ef þið eruð að lenda í vandræðum, látið mig endilega vita á mugison at gmail.com - veit að þá að eftir að laga helling.. jæja.

Nú ætla ég að taka til í stúdíóinu mínu og fara svo að mixa þessa læf plötu sem ég er búinn að ætla að massa í svo langan tíma.  Endilega skráið ykkur á póstlistann minn.. ef þið viljið fá upplýsingar eða áminningu.. þegar læf platan er tilbúinn.. þið getið skráð ykkur á upphaf-síðunni í vinstra dálkinum.. eða send mér bara póst á mugison at gmail.com ... setjið þá í subject.. skráðu mig á póstlistann gamli..

heyrumst/sjáumst fljótt..

kveðja

Múhammedmúkkisón
Fréttatilkynning: Aldrei fór ég suður 2009 bolir til sölu í Hamraborg
Á síðustu Aldrei fór ég suður seldust upp flestar stærðir af "Aldrei" bolunum. Nú er búið að láta framleiða meira af þessum frábæru bolum og fást þeir í Hamraborg. Verðið er það sama og á hátíðinni, eða 2.500 kr. og rennur allur ágóði að sjálfsögðu til hátíðarinnar. Því er um að gera að drífa sig í Hamraborg til að tryggja sér eitt stykki eða svo. Fólki er auðvitað frjálst að kaupa eins marga og það óskar.

þetta kom frá honum Balla frænda hjá Kimi Records sem hjálpaði okkur með bolina..

Einnig er hægt að senda póst á papamug@gmail.com -  það er hann pabbi minn - sendið póst á hann og hann reddar ykkur... bolum.. ef þið búið ekki á ísafjarðarsvæðinu..

stuð og stemming

múkkurinn
tabs
Ég væri mikið til í að fá tabs við Mugison lög hingað á síðuna.
meira
Gúanóstelpan
Er ekki til nein upptaka af Gúanóstelpunni? ... fann fyrir skyndilegri þörf fyrir að hlusta á það lag :)
meira
hæ
Flottur
meira
Zeitgeist - tékkið á þessu
Það er svoldið síðan ég sá fyrri myndina, framhaldið var að koma. Það hafa allir gott að sjá þessar myndir, sérstaklega seinni myndina... hún er hér fyrir neðan..


klikkaðu hér til að fara á heimasíðu myndanna
Mig dauðlangar að ganga í klúbb þar sem þessi málefni eru uppi, ef þið eruð eitthvað inní þessum málum, viljið mæla með bókum, heimasíðum eða heimildarmyndum endilega hendið póst á mig á mugison@gmail.com

Tónleikarnir í Atlanta
sæll Muggi og Rúna

Kristján Sveinsson hérna megin, alla leið frá Montgomery Alabama. Er nú Súðvíkingur í húð og hár og stoltur er ég að því.
Hvar get ég nálgast miða á tónleikana í Atlanta ,GA

Kv Kristján Sveinsson( boggu og svenna sonur, Nesvegi 1)

kveðja á tendó
meira
Anna Grund (79 ára) missir af tónleikum í Þýskalandi, frábært bréf sem ég fékk frá henni...
Sæll Muggi, það var gaman að heyra í þér í síma á dögunum.
 
En eins og ég sagði þá hringdi Anna frænka ( systir mömmu sem eru um áttrætt) í mig frá Hamborg og vildi vita allt um Mugison og tengsl hans við Súðavík. Hún og sonardóttir hennar Rúna ætluðu á tónleika sem þeir sáu auglýsta. Gestur frændi hafði einnig sagt henni frá Mugison.  Þetta fór allt úrskeiðis og ég fékk 6 blaðsíðna bréf frá henni og alla hrakfarirnar. Ég skrifaði upp þennan hluta úr bréfinu en Anna er alveg stórskemmtilegur penni og sendir mér stundum skemmtilegt bréf.
 
Svona hefst bréfið:
Sæll elsku Binni, elsku Anna!
Fyrst þakka ég þér Binni minn fyrir síma samtalið, að þú eyddir tíma í að spjalla við mig, það var mjög gaman.
meira
Tónleikar á Nasa - Föstudaginn 25 Júlí
hæ.. Það eru tónleikar á Nasa Föstudaginn 25 Júlí.. kostar bara 1000 kr .. hægt að fá miða á midi.is

Endilega koma, þar sem þetta verður í síðasta sinn í góðan tíma sem við spilum í höfuðborginni. Við ætlum að taka okkur frí frá Airwaves þetta árið.. endilega koma, lofum að gefa allt í þetta..

kær kveðja

múkkarnir
meira
Hello from Buenos Aires
Hi! I love your album Mugiboogie! Congratulations from this distant place.
May I be included on your MySpace Friends?

meira
Your show at roskilde!
Wow! Once again Wow!

I was introduced to Mugison,(I dont know if thats your name or the bands), by an icelandic friend of mine. Im from norway by the way. He showed me murr murr on youtube and I quite fancied it.

Yeah yeah, whatever, to the point. I was looking at the list of bands playing, and I saw you were playing at the same time as band of horses. Not beeing a big fan of them I said to my mates we rather should check out mugison. Although I didn't know what to expekt live. They agreed on the terms that we would go on to band of horses if it sucked.

We stood in the back of the crowd, and from the first song we were blown away. Oh my what energy you guys delievered. So we ran further too the crowd, and by the middle of the concert or so we stood aproximately 5-10 meters from the stage. It was fantastic. I mean, I was speechless. We couldnt help but bang our heads to the rythm. A drummer with so much energy I at once recalled the early nirvana concerts when Dave Grohl still was banging thoose drums. And such a good, whats it called, melodic speech between you guys. You really connected on stage. And it was a pleasure to be able to enjoy.

After the concert my energy level was so high I just ran around. In my sprint I met an old friend of mine. I joined to his camp. There I met a lovely lady, wich before the mugison concert I wouldn't have a chance on. Nut because my energy level once again was at maximum we were together that whole day.

So I thank you for the greatest gig on the Festival for my part.( You even scored more than radiohead in my book, wich is my favourite band, of thoose whom main vocalist isnt dead. So thank you, keep on rocking. And please release an album were you capture that energy level. That would be epic!

So I dont turn you guys cocky I will not cheerish you more for now, but ill promise. I'll travel to another gig of yours later in my life, thats a promise.

Hugs and beers from

Anders
(id love to place a picture, but im not on facebook so I dont have any, peace!)
meira
Hjalpum Ramses heim
Afhverju er forstöðumaður Útlendingastofnunar ekki handtekinn og yfirheyrður?

Keníumaðurinn Paul Ramses, sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi án þess að taka fyrir mál hans, var fluttur úr landi í morgun með lögregluvaldi.  

Hann starfaði um tíma við hjálparstarf Í Kenía sem íslensk stjórnvöld komu að. Ramses tók einnig þátt í borgarstjórnarkosningum í Næróbí í Kenía í desember í fyrra en náði ekki kosningu heldur andstæðingur hans í stjórnarflokki landsins. Eftir kosningarnar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum, Paul óttaðist því um líf sitt og flúði land í janúar síðastliðinn. Kom hann til Íslands og sótti um hæli sem pólitískur flóttamaður af því að hann dvaldi hér um tíma árið 2005 og starfaði eftir það fyrir ABC barnahjálp í Kenía. Paul tók þátt í að stofna skóla í Næróbí með Íslendingum og var það meðal annars stutt af utanríkisráðuneytinu.

Á leið sinni hingað millilenti Paul á Ítalíu. Ákvæði í Dyflinarsamningnum gefur íslenskum stjórnvöldum heimild - en gerir þeim ekki skylt - til að vísa flóttamanni aftur til þess lands sem fyrst veitir vegabréfsáritun og ber því landi, sem sagt Ítalíu í þessu tilviki ef heimildin er notuð, að taka afstöðu um það hvort honum verður veitt pólitískt hæli. Paul á konu og 3 vikna son sem eru hér á landi. Fjölskyldunni hefur því verið stíað í sundur.

Lögmaður Ramses sagði að í gær hafi lögreglan komið inn á heimili Pauls og tekið hann í fangelsi. Þar sat hann í nótt og var svo fluttur út í morgun.  

Sagt er að tveir menn hafi þá farið út á flugbrautina, sem mun vera lögbrot, til að mótmæla nauðungarflutningum á Ramses. Þeir voru handteknir og færðir í fangaklefa til yfirheyrslu. Kristján Eyjólfsson fulltrúi lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli lítur á þetta mál alvarlegum augum enda varði athæfið hugsanlega við sex ára fangelsi.

En mig langar mig til spyrja:  Hvers vegna handtekur lögreglan ekki forstöðumann Útlendingastofnunar, þegar í stað og yfirheyrir hann fyrir brot stofnunnarinnar á rétti Paul Ramses?

Hvernig skyldi forstöðumanninum annars líða þegar hann kemur í kvöld heim til fjölskyldu sinnar yfir þeim verknaði sínum að hafa stíað annarri fjölskyldu í sundur og stofnað jafnvel lífi fjölskylduföðurins í hættu?

Bara vel? Í það minnsta mun hannh verja gerðir sínar fram í rauðan dauðann - sanniði til- og stjórvöld munu styðja hann samviskusamlega eða öllu fremur án  nokkurrar samvisku í því með ráðum og dáðum.

Hvaða glæpur var annars framinn í þessari atburðarás og hverjir eru glæpamennirnir sem ættu skilið að verða dæmdir í að minnsta kosti sex ára fangelsi? 

grin tekin af þessari síðu
http://nimbus.blog.is/blog/nimbus/entry/583071/#comment-add
meira
Mr. Sosu Dynasty King
meira
FredrikTone
meira
hljóðprufa
meira
Winnipeg update
meira
Winnipeg update
MugiTourBlog arty video
meira
Kallinn flottur
meira
Mæðgurnar segja Hæ
Hæ Mugiboys,

vona að ykkur gangi allt vel, spennandi að geta fylgst með ykkur á netinu. þið eruð flottastir

Knús og kossar
meira
Túr blogg 7? ertu í Gus Gus
meira
Túr blogg 4?
meira
TourBlogg 3

meira
Canada marrr
Góða ferð drengir og gangi ykkur nú vel.
Þetta verður geðveik hjá ykkur....vúhú!!!!
meira
ferðaferð
Góða ferð til Kanada elsku kallarnir mínir...þið eruð láng flodastir.
Love
Rúna and the boys
meira
http://www.youtube.com/watch?v=8fc4FB9M-7U
meira
hæ
kærar kveðjur til allra frá súðavíkinni.
meira
hvurnin er það með þetta skegg.....
Nú er skeggið farið sunnan til
sólgin bíð ég flugfars
Með múkk að vopni canAda vil
sigra eins og kjötfars

Með drottningar og dillidó
dunandi steinaldar
hæ fussum hei og fussum hó
flengi þær sárkvaldar

á ég að laga það...
meira
Öflugir vinir Raggagarðs
Öflugir stuðningsmenn Raggagarðs

Eins og fram hefur komið í fréttum, hefur komið beiðni frá Mugison um hjálp við að brjóta saman plötu-umslög fyrir nýja diskinn hans. Þetta er fjáröflun fyrir félagsamtök hér í Súðavík sem Súðavíkurhreppur greiðir fyrir, ákveðna upphæð fyrir hvern disk. Öflugir vinir Raggagarðs tóku höndum saman og héldu tvö vinnukvöld og brutu saman um 3000 eintök og rennur ágóðinn að vinnunni til Raggagarðs. Það er Raggagarði mikill styrkur og heiður að hafa öflugt og duglegt fólk sem styður við uppbyggingu garðsins.
meira
4kúlur og steikarstopp
    Allt alvöru fólk þarf að borða rauða steik.
Við kallarnir hittumst í kvosinni í dag hjá biggaling og ræddum atferlisvísitölu, tilfinningar og guð.
Fórum síðan í eldrauða steik á búllu nokkra.
.. og súkkulaðiköku..

það sem koma skal hjá múkkum er heimsins flakk og músisering í austri jafnt sem í vestri.

kjöt og prótein lifi.

þrek og púl með smiði.


dabitz tz
meira
verðlaun og páskar
fyrradag voru tónlistarverðlaunin og þar tók mugison flokkurinn 3 verðlaun. Við hjónin gerðum okkur bæjarferð og mættum í partíið.
meira
Fjöldapóstur 23 Janúar
kæru vinir

Mugiboogie kom út seint í október hér heima og við Múkkarnir spiluðum víðsvegar um landið í kjölfarið. Platan fékk almennt mjög fína dóma og var valin plata ársins hjá Fréttablaðinu. Fjölskylda og vinir hjálpuðu okkur að föndra gripinn og nú er hún kominn í Platínu... eða búin að seljast í yfir 10.000 eintökum. Ég vil þakka öllum sem keyptu og hlustuðu kærlega fyrir mig.

Nú er ég að vinna að því að koma disknum út í útlandinu. Við feðgar erum að fara á tónlistar-ráðstefnu sem heitir Midem næstu helgi þar sem við ætlum að hitta nokkra dreifingaraðila og reyna að höstla góða díla.
meira
Stórvirki Mugisons - Dómur í Fréttablaðinu
Mugiboogie fær 5/5 stjörnum í Fréttablaðinu í morgun. Geðveikt, takk fyrir mig... þið getið lesið dóminn með því að klikka á lesa meir..
meira
Áræðið sigrar - Moggadómur
ÞAR sem einlægni sálarinnar, stórkostlegir hæfileikar og frumleg framsækni mætast, verða töfrar Mugisons til. Sjálfur kýs hann líklega að þakka ástinni fyrir en ég tel að fyrrgreind atriði hljóti að skipta nokkru máli. Ég hef nefnilega heyrt margar blúsplötur, ástarlagaplötur, dauðarokksplötur, poppplötur, raftónlistarplötur, og sýrurokksplötur – en fáar þeirra komast í hálfkvisti við Mugiboogie.
meira
Mónitor Biggi og ég megasáttir

yes sörr.. þetta var misskilningur okkar á milli, og málið er dautt.


hér er annars nýjar myndir sem Jónas Val gerði..


















kíkið hér til að sjá fleiri myndir eftir þennan snilling.
meira
Monitor
Guðblessaðan daginn

Sá að Mónitor er komið út, ég á forsíðu og allt.. flott mynd og þetta fína viðtal. Og svo leyndist dómur í blaðinu líka sem kom mér soldið á óvart þar sem ég hafði brent disk fyrir Bigga Mausara - ritstjóra - bara svona svo hann heyrði lögin áður en hann kæmi vestur að taka viðtal... platan var allsekki tilbúin í þeirri útgáfu, nokkur lög fengu endurmasterun og röðun og bil milli laga var ekki kominn. Hann lofaði að leifa engum að heyra en svo hefur hann samt gefið vinkonu sinni kópíu til þess að skrifa dóm um plötu sem var ekki tilbúin, frekar skrítið.

Flott blað hjá þeim engu að síður, mjög flott... lúkkar vel og skemtilegt að lesa.
meira
Go Blind á Vellinum

meira
Mugiboogie á vellinum nýtt lag

meira
I want you á vellinum

meira
Murr Murr rokkað í tætlur á vellinum

meira
alltaf inní skúr
Er enn í hljóðverinu hér í Súðavík, búinn að vera að semja og taka upp einsog brjálæðingur. Búinn með 5 lög og á eftir smá vinnu í 7 öðrum, allt að koma. Sum lögin eru til í svo mörgum útgáfum að það væri hægt að gefa út 10 diska box-set af aukaefni með disknum.

Búið að vera geðveikt veður hér fyrir vestan, en ég er enn fölur einsog það sé febrúar, alltaf inní skúr, næst þegar ég geri svona plötu ætla ég að vinna hana alla um vetur og túra sumarið.. þannig á þetta að vera.

Heyrumst og sjáumst sem fyrst

Mugison

meira
senda SMS á papamug 8932988
Guðblessaðan daginn. Vilda þakka öllum sem komu á Aldrei fór ég suður hátíðina síðustu helgi. Takk takk takk. Ég skemmti  mér konunglega. Þetta var óvenju stór hátíð í ár og óvenju mikið stuð.

hér er hægt að horfa á hátíðina á netinu í heild..

föstudagur klikkið hér

laugardagur klikkið hér

Þakkir til allra sem komu að hátíðinni og hjálpuðu til... takk takk.. , sérstaklega Dána slikk og papamug (það er enn hægt að senda honum þakkar-sms í 8932988 - hann fékk um 150 á tónleikunum.. ef þú varst á hátíðinni.. endilega hentu sms á papamug, hann púlaði manna mest til þess að hún gæti orðið að veruleika... púlaði svo mikið að hann er búinn að liggja í rúminu síðan.. kalluglan )
meira
Alrei Fór Ég Suður
Nærri 40 atriði komin á lista hinna staðföstu
 
Nýr og uppfærður listi yfir þá sem koma fram á Aldrei fór ég suður hefur nú litið dagsins ljós. Helstu tíðindi eru þau að rokksveitin I adapt hefur dottið út vegna anna hljómsveitarmeðlima sem eru uppteknir við að meika það í útlöndum. Í staðinn hafa bæst við franska hljómsveitin Nosfell, Ólöf Arnalds og Dónadúettinn og heimaatriðin Hrólfur Vagnsson, Kristina Logos, Xenophobia og síðast en ekki síst Lúðrasveit Tónlistarskólans á Ísafirði. Atriðin eru nú hvorki fleiri né færri en 37 talsins.
Þess má geta að rokkstjóri hefur að því er hann best veit skrifað umsagnir um alla þá listamenn sem koma fram á hátíðinni, á íslensku og á ensku og er hægt að nálgæst þær hér á vefnum.
 
Listi hinna staðföstu:
meira
copy - paste frá Framtíðarlandinu
Kæru vinir, fjölskylda, vinnufélagar og vandamenn!

Mig langar að biðja ykkur að taka frá nokkur mínútur til að huga að framtíðinni. Á vefnum má nú finna Sáttmála um framtíð Íslands. Þessi sáttmáli snýst um að gefa okkur tækifæri til að ná andanum eftir stórkostlegar framkvæmdir í stóriðju og virkjunum síðastliðin ár. Það er kominn tími til að staldra við og hugsa um það hvort Ísland framtíðarinnar verður grænt eða grátt.


meira
það er bara einn Davíð Þór

meira
Múkk Múkk
Kæru velunnarar

Ég datt í gírinn í gærkveldi og massaði aðeins heimasíðuna..

ég var orðin svo ringlaður ... sjá mynd..


nú er eitthvað smá meira skipulag á þessu.. og betur sett upp.. vonandi..

platan gengur fínt.. fullt af upptökusessónum framundan..  Aldrei fór Ég Suður... tíminn líður aðeins of hratt... finnst svo stutt síðan síðasta hátíð var..

jæja.. stuðkveðjur

Múkkíson

meira
e-mail viðtal
viðtal sem hann Hjalti hjá Landpóstinum tók við mig fyrir stuttu.. sjá síðuna hans hér

Tónlistarmaðurinn Mugison er í óða önn að taka upp næstu plötu en þessi geðþekki Vestfirðingur hefur áorkað miklu á undanförnum misserum. Landpósturinn hafði samband við Mugison sem lofaði því meðal annars að koma og halda bestu tónleika ”ever,” á Akureyri næsta sumar.

Mugison, eða Örn Elías Guðmundsson eins og hann heitir, fékk viðurnefni sitt í Malasíu er hann heimsótti föður sinn, Mugg. Þar var hann réttnefndur sonur föður síns og síðan þá hefur viðurnefnið haldist við hann. Eftir að hafa fengið fyrsta gítarinn sinn þrettán ára gamall var ekki aftur snúið hjá tónlistarmanninum sem hélt á vit ævintýranna til London þar sem hann stundaði nám.
meira
Mugison semur tónlist fyrir bíómyndina On the Road

Ísfirski tónlistarmaðurinn Mugison hefur samþykkt að gera tónlist við nýja mynd Walter Salles, sem byggð er á skáldsögunni On the Road eftir bandaríska rithöfundinn Jack Kerouac. Walter Salles leikstýrði meðal annars bíómyndinni Diarios de Motocicleta, eða Mótorhjóladagbækurnar eins og myndin nefndist á íslensku, en sú fjallaði um argentíska byltingarsinnann Ernesto „Che“ Guevara Lynch de la Serna og naut nokkurra vinsælda fyrir fáeinum misserum.
meira
Gleðilegt nýtt ár
Ég fæ stundum e-mail þar sem fólk er að spurja hvort ég geti ekki sagt því hvaða grip eru í hinu og þessu lagi eftir mig.. ég er svo glataður í nöfnum á þessum gripum.. þannig að ég ætla að taka upp nokkur videó.. með þeim lögum sem þið eruð að biðja um.



þið þurfið að vera með quick time playerinn - náið í hann hér

meira
R kelly ...
Biggi vinur minn benti mér á þetta.. tékkið á því!!! viðbjóðslega fyndið..

þið verðið að horfa á þátt 1 - 12 .. þeir eru númeraðir.. en stundum þarf maður að finna þá ..


meira
Gefum Benna Blóð 1, 2 og nú


Hæ ég heiti Benedikt Vagn og ég er tíu ára, ég fæddist með hjartagalla og
blóðsjúkdóm.

Það eru ekki margir með sama blóðsjúkdóm og ég í öllum heiminum, kannski
svona 500. Ég þurfti að fara í hjartaaðgerðir þegar ég var 3 vikna og svo
aftur 4 ára. Börn sem fara í hjartaaðgerðir missa mikið blóð í aðgerðinni og
þá þarf að gefa þeim blóð
meira
Nýr vefur, Mýrin og ný plata
Ég og Magni vinur minn búnir að taka aðeins til hérna á vefnum... búnir að setja upp betri sjoppu... nú getið þið keypt download.... ég held að ég sé fyrstur að gera það á íslandi.... allavega þannig að það sé hægt á síðunni sjálfri.. þetta er mjög ódýrt forrit sem við fundum á netinu. Endilega prófið þetta.. það hefur enginn Íslendingur þorað að kaupa af vefnum hjá mér ennþá.. vert þú endilega fyrstur.. sá sem er fyrstur að kaupa á síðunni heila plötu fær hinar ókeypis með..
meira
Framtíðarland
tékkið á þessu - bein útsending núna
meira
Tilraunareldhúsið með skemtun í Iðnó 8.júní kl. 22
góðan og blessaðan daginn, var að koma heim frá Danmörku og Þýskalandi... hljómsveitin náði að gera mega-gigg í Áaaarhúsum og Þýskalandi, lélegt gigg í köben... gerum bara góða tónleika þar næst.

Það verður geðveik skemtun í Iðnó næsta fimmtudag. Ef þú ert ferðafær þá skaltu halda uppá það með því að hoppa niður í Iðnó á fimmtudaginn og kíkja á tónleika.. þar koma fram amiina, paul lydon, illi vill og benni hemm hemm ætla að leika fyrir dansi, magnús leir og örvar eplablóð stýra fornum sýningarvélum.

þaðernúlíkasttil

kær kveðja

múkkison

meira
páskarnir búnir - enn fyrir vestan
Hátíðin í ár var sú langskemmtilegasta hingað til.. ótrúlegt hvernig hún hefur náð að toppa sig alltaf þessi hátíð. Listamennirnir sem komu að spila gerðu það af svo mikilli snilld að ég hef ekki séð annað eins. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum þegar Harmonikkufélagið  og húsið á sléttunni með honum Bigga söngvara úr víkinni steig á svið, ég ætlaði ekki að trúa eyrum né augum, þetta var flottasta atriðið í ár.

Reykjavík kom mér mest á óvart, það er langt síðan ég sá hljómsveit sem hefur jafn gaman að því að vera hljómsveit, ótrúlega vel æfðir og þetta nýja stuff náði einhvernvegin að koma mér í svo góðan fíling að ég gat ekki hætt að tala vel um þá og hugsa um lögin.  Takk fyrir mig Reykjavík, get ekki beðið eftir nýju plötunni.
meira
Alrei Fór Ég Suður
Páskahelgin, Jesúbarnið að rísa upp, stór páskaegg og Rokkhátíð  Alþýðunnar Aldrei Fór ég Suður. Hér er listi yfir þá sem koma fram.. og svo bætast 4- 10 hljómsveitir við þegar nær dregur.. mmmmm

finnst að við ættum að tæma Reykjavík og Akureyri... alla bæi landins og koma vestur um páskana, hlusta á brot af því besta sem er að gerast í íslenskri tónlist í dag. Allt ókeypis, ókeypis á hátíðina sem er laugardaginn 15 apríl, svo er bara að finna frænku eða frænda fyrir vestan og redda sér gistingu, koma með alla fjölskylduna, gera eitthvað nýtt og öðruvísi þessa páska.

Hér er fyrsta uppkast... af lænöppinu
meira
misti af verðlaunum í gær!!
góðan dag. Var á tónlistarhátíðinni í gær, mjög gaman þar. Ég fékk að kinna myndband ársins og hver fékk það nema aðal söngkonan hún Emiliana Torini. Hún er frábær, geðveikur söngvari og frábær lagahöfundur. Til hamingju.

Allavegana þá vorum við Rúna ekki með sæti í salnum og sátum mest uppá bar, svo urðum við eitthvað eriðarlaus og röltum aðeins um þjóðleikhúsið, þar eru milljón gangar og herbergi, mjög skemtilegt völundar-hús... allavega þá settumst við bara niður þarna á einum stað og fórum á nett trúnó.
meira
Gleðilegt Nýtt ár!!
þá er komið nýtt ár og ég í góðum fíling. Er núna að vinna að næstu plötu. Er búinn að vera heillengi að leita mér af húsnæði í bænum, meiraðsegja sagt frá því í nokkrum viðtölum en ekki ein sál boðið mér að koma og skoða húsnæði.. fyrr en í síðustu viku þá hringdi ég í vin hans Papamug, hann Stefán og hann var þá með laust herbergi hérna í bænum... þannig nú bretti ég bara upp ermarnar og hoppa í næstu plötu. Little trip soundtrakkið gengur svona rosalega vel. Takk fyrir að kaupa hana, ég bjóst nú aldrei við að hún myndi seljast svona vel..
meira
Ég og Hjálmar
Beint úr ofninum... vorum að klára nýtt lag í gærkveldi, ég og Hjálmar. Það heitir ljósvíkingurinn... jólagjöfin í ár.. hlaðið niður á tölvuna ykkar og hlustið á.

klikkið hér til að ná í lagið

við ætlum að búa til rosalegan Jólagraut á Nasa næsta föstudag (byrjum um klukkan tólf), Ég Hjálmar og Trabant, ég blandast inní báðar hljómsveitir, spila í nokkrum lögum eftir þá og þeir djamma eitthvað af lögunum mínum... Rosa jóla-stemming. Forsala hefst á miðvikudag í 12 tónum Skólavörðustíg.

-----    ENGLISH ----
hey a new song that me and my favorite Icelandic Band called Hjalmar did last night, it´s in Icelandic and is called Ljósvíkingurinn

download here
meira
Rás tvö blogg 3
Jæja, þá fórum við heim frá New York með fullar töskur af barnafötum, afinn sem býr í NY keypti meira að segja lítinn jólasveinabúning. Fórum heim í 20 klukkustundir, og svo aftur út á flugvöll og til Þýskalands að spila fyrir hann Dirk vin okkar í Köln. Þar voru örugglega um 100 íslenskir listamenn. Ég spilaði á tvennum tónleikum, annars vegar á opnuninni þar sem Skúli Sverris og Hilmar Jens spiluðu, ég og svo Apparat. Held að við höfum allir sloppið vel frá þessu giggi. Daginn eftir var ég með sóló gigg í gömlu bíóhúsi, það hafði farið góður rómur um bæinn um fyrri tónleika mína sem varð til þess að það var alveg stappað á seinni tónleikana. Ég var svo ánægður með mætinguna að ég spilaði í 1 klukkutíma og 40 mínútur sem ég held að sé persónulegt met. Skemmti mér vel í Þýskalandi.
meira
Hálfnaðir með Skandísinn
Tónleikarnir í Kolding voru fínir, ég náði mér samt í eitthvað kvef í Köben, en tónleikarnir voru fínir, slatti af hressum Íslendingum. Vöknuðum snemma til að fara til Köben aftur og spila á Vega. Við komum klukkutíma fyrr en við bjuggumst við til og fórum þess vegna á kaffihús, þar rakst ég á hana Júlíu frá Flateyri, og nema hvað þá er hún með Politíken (sem er nokkurs konar Mogginn hjá Dananum) og hver er þá á forsíðunni, auðvitað kallinn.... þá er bara mynd af mér á hestbaki og heilsíðuviðtal. Hringdi í pabba og sagði honum frá því og honum fannst að ég ætti að fara á bílaleiguna og skipta út Fordinum fyrir limmó, nú væri maður orðin stjarna í Danmörku, ég tók hann á orðinu og rúntaði beint á næstu bílaleigu en svo kom í ljós að þessar limmur eru helvíti dýrar og þar sem þessi túr er næstum því unnin í sjálfboðavinnu þá hættum við ekki á að tapa aleigunni, þótt við hefðum verið flottir í nokkra daga.
meira
Hollywood og New York
eyddum fimmtudeginum mestmegnis í flugvél eða á flugvöllum á leiðinni frá Minneapolis til Hollywood. Ferðin gekk stóráfallalaust fyrir sig. Tókum SuperShuttle sem er svona skutl þjónusta, þá deilir maður sendiferðabíl með fullt af liði. Tékkuðum okkur inn á Best Western Hollywood Hotel, nafnið sjálft segir allt. Snilld. Við Biggi enn og aftur saman í herbergi, alltaf verið að skera niður, held að maður gæti ekki sofnað ef við værum ekki saman í herbergi, langt síðan ég svaf einn.
meira
bólgnar tær - slef á öxl


lögðum af stað félagarnir klukkan tvö á þriðjudaginn frá BSÍ, í fyrsta Ameríkutúrinn minn, við vorum mjög spenntir og fullir tilhlökkunar, lífsglaðir einsog Gunnar Dal hefði andsetið okkur, Gísli Marteinn og Elsa Lúnd. Flugum beina leið til Boston. Þar þurftum við að fara í gegnum tollinn og innflytjendaeftirlitið, þessar löggur eða hvaða starfsheiti þeir hafa... fannst mér einhvernveginn einsog þeir myndu handtaka mig og senda beinustu leið á Gvantanamó,
meira
Ráin í kvöld og svo bú!!
jæja þá, ég tek síðustu one man band tónleikana mína hér heima í kvöld á Ránni í Keflavík. Ég hef verið að rúnta slatta um Evrópu og á núna eftir 20 tónleika um Evrópu og Bandaríkin fram að byrjun Desember. Eftir það parkera ég ferðatöskunni þangað til að ég er kominn með nýtt stuff, nýja alvöru plötu.
meira
sælt veri fólkið
Búinn með 2 tónleika, einn í Rotterdam og annan I Amsterdam í gærkvöldi. Tónleikarnir í Rotterdam voru skemmtilegir, ég og Kira Kira í góðum fíling fyrir fullu húsi, mjög gaman. Tónleikarnir í gær klúðruðust samt alveg, D-Strengurinn slitnaði í fyrsta lagi, og ég nátturulega ekki með aukastreng á mér.
meira
í Sigur Rósar Sundlauginni
þeir kappar í Rósinni bara endanlega búnir að meika það, ekkert djók hjá þeim félögum, orðnir jafningja Coldplay og U2.. ég er svo ólýsanlega stoltur og ánægður með þá, fyrst og fremst fyrir frábæra tónlist......
meira
Nýr og betri Mugivefur
 enn breytist mugivefurinn. held að þetta sé fjórða andlitið sem hann fær síðan ég henti í fyrsta vefinn 2003, í gamladaga!!.
meira