Datt í hug að sum ykkar hefðu gaman af Blogginu hans Daða, setur hlutina í skemmtilegt samhengi
tékkið á honum hér
en fyrir þá sem nenna ekki að klikka.. þá er hér einn pistill frá honum.. mæli með að menn nái sér í kaffi, kannski hella smá útí og sökkvi sér svo í efnið..
Siðlaust fólk stjórnar þessu landi. Siðlaust fólk sem uppalið
er í ungliðahreyfingum sérhagsmunaflokka - þjálfað í stjórn vs.
stjórnarandstaða skrípaleiknum í Háskóla Íslands, komið til metorða
innan flokksins með þátttöku í nefndum, hefur sagt já við fólkið sem er
hærra uppi í metorðastiga flokkakerfisins nógu oft.